Private: Women's Day celebration

Einkamál: Konudagsglaðningur

Posted by Feel Iceland on

Næstkomandi sunnudag, fögnum við konudeginum, sem er aldalöng hefð á Íslandi. Í gamla norræna dagatalinu markar konudagurinn fyrsta dag mánaðarins í Góu, sem færir með sér vaxandi birtu.

Á konudegi er því hið fullkomna tækifæri til að dekra við okkur sjálf og/eða konurnar í lífi okkar. Að því tilefni fylgir frír Barre prufutími hjá NúnaCo Wellness Stúdíó með öllum kaupum á kollagenvörum í vefverslun Feel Iceland, en Barre er blanda af pilates, jóga- og styrktaræfingum, gerðar á dýnu og við ballettstöng.

Barre kennarinn Helga Guðný Theodórs opnaði stúdíóið sumarið 2022, eftir að hafa búið í 13 ár í Kaliforníu. Helga Hefur tekið inn kollagenið frá Feel Iceland í rúmlega 3 ár og segist vera laus við alla líðverki síðan.


Feel Iceland er eitt af þeim merkjum sem ég hef fylgst með frá upphafi. Ég man ennþá eftir því þegar það kom fyrst á markað þegar ég bjó í Kaliforníu, þá fannst mér það svo spennandi hvaða hráefni var verið að vinna með,. ótrúlega frábær nálgun á nýtingu á sjávarafurðum, og ekki var verra að hönnunarhjartanu í mér fannst öll umgjörðin svo flott.Eftir að ég flutti svo heim fyrir þremur árum síðan, eftir 13 ár úti, byrjaði ég að prófa Feel Iceland kollagenið, notaði það í boozt og jógúrt og kaffi en hef fundið frábæra rútínu þar sem ég set eina skeið út í kalt vatn með vítamínblöndu á morgnana og drekk það með Joint Therapy hylkjunum, daglega ásamt öðrum fæðubótarefnum sem ég tek.Feel Iceland kollagenið er æði og ég elska að taka það, en það sem ég hef alveg fallið fyrir er Joint Therapy hylkjunum. Að kenna yfir 15 Barre tíma á viku getur tekið á, og ég var farin að finna aðeins fyrir liðverkjum í fingrum, sem er kannski ekkert óeðlilegt þegar ég stilli upp ansi mörgum plönkum á viku  en eftir að ég byrjaði að taka Joint Therapy fæ ég enga verki í liði lengur.  Algerlega meiriháttar að finna vörur sem virka 100%, gera manni svona gott, og ekki verra að hafa það fallegt á hillu!“ Segir Helga Guðný

← Eldri færsla Nýrri færsla →

Fréttir

RSS
Health chef Kristjana Steingríms

Heilsukokkurinn Kristjana Steingríms

By Feel Iceland

  Hver er Jana? ” Ég heiti Kristjana Steingrímsdóttir en alltaf kölluð Jana, ég hef brennandi áhuga á öllu sem tengist heilsu og heilsusamlegu líferni....

Read more
Private: Singles Day collagen twins

Einkamál: Singles Day kollagentvennur

By Feel Iceland

Eftirfarandi afslættir eru í boði á ,,Singles Day” (11.11) Kollagentvenna #1 inniheldur stóra dós (300g) af Amino Marine kollagenduftinu ásamt Joint Rewind liðahylkjunum. Verð er nú...

Read more